Norðfirski hópurinn á Arnarstapa

Vi+%C2%A6%20Arnastapa[1]

Ljósm. Sigurður Arnfinnsson


Unaðsdagar eru í Hólminum

Úr mbl. í dag 

Unaðsdagar eru í Hólminum

og hver vill ekki njóta þeirra. Hótel Stykkishólmur býður upp 5 daga dvöl frá mánudegi til föstudags fyrir eldri

borgara í haust og næsta vor. Fyrsti hópurinn mætti til leiks í vikunni, 60 manna hópur frá Neskaupstað. Í boði

er fjölbreytt dagskrá sem eldri borgarar í Hólminum taka þátt í. Gleðistjórnandi er Gísli Blöndal. Næstu

Unaðsdagar verða 4.-8. október.


Fjórar ferðir yfir Atlanshafið einn á rúmlega tveggja lesta bát

Sófus Gjöveraa sem bjó í Neskaupstað hefir hvorki meira né minna en fjórum sinnum farið yfir Atlantshafið, aleinn á smábát. Allar þessar ferðir hafa verið farnar milli Íslands og Færeyja, en ein þó einnig til Hjaltlands og Noregs. Sófus Gjöveraa Færeyingur að ættum, þótt hann hafi lengi átt heima hérlendis, sé kvæntur íslenzkri konu og hafi hlotið íslenzkan ríkisborgararétt.Alla ævi hefir hann stundað sjómennsku löngum einn á báti og kann ekki að hræðast. Hann hefur haldið dagbækur, og mundu sjóferðir hans efni í læsilega bók

. Bauðst til að sigla á heimssýninguna

Þegar heimssýningin var í New York, spurðist Sófus Gjöveraa fyrir um það,hvort f orstöðumenn íslandsdeidarinnar hefðu áhuga á því, að smábátur,undir íslenzkum fána sigldi frá Íslandi til New York og kæmi á heimssýninguna Bauðst Sófus til þess að sigla þessa leið á kænu sinni, en ekki kom til þess, meðal annars vegna þess, að hann var þá ekki íslenskur ríkisborgari. 

Ferðir Sófusar

Í tilefni af útvarpsfrétt um smábát, er fór í sumar frá Dalvík til Færeyja, hefir Sófus sent blaðinu svolátandi greinargerð um ferðir sínar yfir Aaltntshafið:„Í ágúst var í ríkisútvarp inu sagt frá því, að bátur hefði farið frá Dalvík viðEyjafjörð til Færeyja og þess getið, að bátur sá mundi vera minnsti farkostur,sem farið hefði verið á milli þessara landa.Ég hefi fjórum sinnum farið milli Færeyja og Íslands aleinn á sama trillubátnum allar ferðirnar. Sá bátur er samkvæmt skráningu ekki nema 2,2 brúttó lestir.Fyrstu ferðina fór ég árið 1936. Átti ég þá heima á Húsavík í Suður-Þingeyjarsýslu. Lagði af stað 29. ágúst. Komst að Færeyjum, . en náði ekki landi. Hrakti frá eyjunum. Komst með hjálp segla í Hornafjarðarós 14. september. Var dreginn að bryggju á Höfn í Hornafirði af m. b. Björgvin, en formaður hans var Sigurður Ólafsson. Í aðra ferðina fór ég um sama leyti sumarið eftir fra Seyðisfirði og náði þálandi í Færeyjum. Tafði þar um stund, en hélt siðan ferðinn áfram til Leirvíkurá Hjaltlandseyjum og þaðan yfir Norðursjóinn til Bergen í Noregi. Kom ég þangað 20. september. Aðalerindið til Bergen var að fá nýja vél í bátinn. í honum var gömul Rap-vél, en verksmiðja í Bergen framleiddi þær vélar. Fékk ég nýja vél ókeypis í bátinn hjá verksmiðjunni fyrir að hafa farið einn á litlumbáti með gamalli Rap-vél frá Íslandi til Bergen sannað með því ágæti þessarar vélartegundar. Þriðju ferðina fór ég frá Íslandi til Færeyja árið 1938 og var þrjá sólarhringa á leiðinni. Fjórðu ferðina fór ég svo í júlí 1939. Fór þá frá Fuglafirði í Færeyjum og var fjóra sólarhringa til Fáskrúðsfjarðar.


Fjórar ferðir yfir Atlanshafið einn á rúmlega tveggja lesta bát

Sagt frá Sófusi Gjoveraaí vikulokin


Nýtt eldhús komið

Breytingum á eldhúsinu í Sigfúsarhúsinu er lokið og nú er bara eftir að koma öllu á sinn stað. Það verður gert um helgina og byrjar vetrarstarfið á fullu í vikunni. Dreifibréf kemur eftir helgina.

Lagfæringar hafnar

Byrjað er að endurnýja eldhúsið í Sigfúsarhúsinu. Það voru skiptar skoðanir um hvort fara ætti í þessar breytingar eða ekki. Ég var aldrei efins um þær og eftir að ég sá hvað var á bak við og undir skápunum er ég hissa að þetta hafi ekki verið gert fyrr. En núna  er verkið sem sagt á fullu og verður ánægjulegt að sjá breytinguna.

Ein gömul mynd fannst bak við skápana, ekki svo mikið skemmd og er ég búin að koma henni til Guðmundar Sveinssonar. Þá var hamar í sökklinum, merktur á skaftendanum S.


Eldri borgarar afgangsstærð

Það virðist sem eldri borgarar í Fjarðabyggðsé afgangsstærð í augum nýrrar bæjarstjórnar. Þetta er allt um þeirra máefni í samkomulaginu um stjórnun Fjarðabyggðar:

16. Vinna þarf vel að málefnum eldri borgara í samvinnu við félagasamtök þeirra. Stuðla þarf að því að þeir geti búið sem lengst á heimilum sínum.

Enn sem fyrr munu stjórnendur Fjarðabyggðar velta boltanum til eldri borgara félaganna.


Merkisafmæli

Jóhanna Ármann fyrrverandi formaður Félags eldri borgara á Norðfirði í tæplega tvo áratugi átti merkisafmæli á dögunum. Hún var "að heiman" og það var fyrst í dag, sunnudaginn 13. júní að það gafst tækifæri til að færa henni blóm í tilefni dagsins. Takk fyrir allt Jóa.

 


Sumarferðin 2010

Sumarferð-2010


Myndlist austfirskra kvenna

Hópur austfirskra kvenna sem allar eru búsettar á Norðfirði munu sýna myndir og málverk í kaffihúsinu Gónhól á Eyrarbakka frá 4.- 30. júní 2010.

Allar eru konurnar starfandi við önnur störf en áhugi þeirra á myndlist til margra ára hefur sameinað þær í einn hóp sem starfað hefur saman í um 12-15 ár í húsnæði Listasmiðjunnar, Þórsmörk.

Gegnum árin hafa þær sótt námskeið, utan lands sem innan en einnig haldið námskeið fyrir almenning sem leidd hafa verið af hinum ágætustu listamönnum s.s. Öldu Ármönnu Sveinsdóttur, Þuríði Sigurðardóttur, Valgarði Gunnarssyni og Kristbergi Péturssyni svo einhverjir séu nefndir.

Konurnar eru: Anna Bjarnadóttir, garðyrkjufræðingur; Berglind Þorbergsdóttir, aðalbókari; Hildur B. Halldórsdóttir, ljósmóðir; María Teresa Goncalves, hjúkrunarfræðingur og Theodóra Alfreðsdóttir, bóndi.

Flestar eru myndirnar unnar í olíu og akrýl en einnig vatnslitum og er meginþema myndanna gjarnan tekið úr austfirsku umhverfi s.s. fjöllin og fjörðurinn en einnig gætir þar fleiri grasa.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband